Uppfærðar teikningar á BN051881
Bjargargata 1 01.63.130.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1056
18. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051881 þannig að innra skipulag breytist og brunamerkingar eru lagfærðar vegna öryggisúttektar á 3. hæð húss á lóð nr. 1 við Bjargargötu.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 27. janúar 2020, bréf hönnuðar dags. 6. febrúar 2020 og afrit af tölvupósti dags. 31. janúar 2020 sendur af brunahönnuði til fulltrúa slökkviliðs höfðuborgarsvæðis.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

102 Reykjavík
Landnúmer: 220421 → skrá.is
Hnitnúmer: 10104615