Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishús auk kjallara fyrir alls 74 íbúðir, mhl. 01 og djúpgáma, mhl.02, á lóð nr. 1 við Bátavog.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.451.2 dags. 20. júlí 2018, hæðablað fyrir Bátavog 1 dags. 1. maí 2019, varmatapsútreikningar unnir af Helga G. Bragasyni dags. 28. janúar 2020 og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða móttekið 28. janúar 2020, bréf hönnuðar dags. 13. febrúar 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2020.
Stærðir: 5.207.1 ferm., 15.817.5 rúmm.
Nýtingarhlutfall A- og B- rými: 1.27.
Gjald kr. 11.200