Sótt er um leyfi til að stækka íbúðir með því að færar inngangshurðir út í ganginn, sem er sameign í miðrými allra hæða, gera tvo séreignafleti á þaksvölum á 13. hæð, flötur nr. 1306 fyrir íbúð 1301 og flötur 1307 fyrir íbúð 1302, í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 23 við Sólheima. Gjald kr.11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.