Sótt er um leyfi til að stækka kvist á norðausturhlið hússins á lóð nr. 14 við Lynghaga. Erindi fylgir samþykki meðeigenda nr. 14 og nr. 16 ódags, eignarskiptayfirlýsing frá 23. janúar 2000 og bréf aðalhönnuðar dags. 27. febrúar 2020. Stækkun: 7,5 ferm., 6,0 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa í grenndarkynningu. Vísað til uppdráttar nr. 01 dags. 28. febrúar 2020.