Íbúðarhús og bílageymsla, sex mhl.
Sigtún 30 01.36.610.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1076
14. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 6 fjölbýlishús, mhl. 02-07, með 110 íbúðum og verslun og þjónustu á 1. hæð ásamt bílakjallara, mhl. 01, á lóð nr. 30 við Sigtún.
Erindi fylgir yfirlit breytinga fyrir hvern matshluta, brunahönnun bílgeymslu frá Lotu dags. 16. apríl 2020 og kvittun frá sýslumanni vegna móttöku lóðarleigusamnings til þinglýsingar dags. 3. júlí 2020.
Samtalsstærðir A og B rými:
Hús nr. 30, mhl.01: 2.833,1 ferm., 9.601,4 rúmm.
Hús nr. 32, mhl.02: 4.573,5 ferm., 15.673,0 rúmm.
Hús nr. 34, mhl.03: 1.105,0 ferm., 3.765,4 rúmm.
Hús nr. 36, mhl.04: 1.117,4 ferm., 3.855,9 rúmm.
Hús nr. 38, mhl.05: 2.084,6 ferm., 7.392,2 rúmm.
Hús nr. 40, mhl.06: 4.884,0 ferm., 16.201,8 rúmm.
Samtals á lóð: 16.600,6 ferm., 56.489,7 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104707 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015252