Sótt er um leyfi til þess að setja svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar íbúðarhúss á lóð nr. 13 við Ásvallagötu. Erindi fylgir samþykki lögráðamanns og lögerfingja eiganda íbúðar 01-0101 dags 4. mars 2020, afrit af skipunarbréfi lögráðamanns dags. 6. febrúar 2019, greinargerð hönnuðar dags 25. febrúar 2018 og afrit af tölvupósti er varðar lokaúttekt. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. apríl 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa í grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta nr. A1-01 dags. 25. febrúar 2020.