Bílskúr - Nýtt erindi. (SBR. BN052183
Drápuhlíð 38 01.71.300.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Freyr Halldórsson
Byggingarfulltrúi nr. 1077
21. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr á vesturhlið húss úr forsteyptum einingum, saga niður úr glugga á vesturhlið íbúðar 0101, koma fyrir hurð og stálbrú út á bílskúr og tröppur frá bílskúrsþaki niður á lóð fjölbýlishúss nr. 38 við Drápuhlíð.
Samþykki meðeigenda húss dags. 18. apríl. 2020 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júní 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2020.
Stærð bílskúr: 28,0 ferm., 88,2 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107218 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009254