Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN049240, vegna lokaúttektar á veitingastað í flokki III tegund a), og felst í breytingum á innra skipulagi í eldhúsi og bæta við hurð á austurhlið húss á lóð nr. 8 við Grandagarð.
Erindi fylgir hljóðvistarskýrsla dags. 3. júlí 2020, samþykki meðlóðarhafa og meðeigenda fyrir núverandi staðsetningu á sorpskýli við suðurhlið byggingar dags. 2. júní 2020, umsögn brunahönnuðar dags. 2. júní 2020, hljóðmæling dags. 8. mars 2017 frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Gjald kr. 11.200