Sótt er um leyfi til þess að stækka íbúð á 2. hæð með því að hækka þak og útbúa svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús auk þess að bæta við svölum á rishæð íbúðarhúss nr. 19 við Barmahlíð. Erindi fylgir A3 afrit af teikningasetti dags. 25. mars 2020 með áritun eigenda íbúða 0001 og 0101. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og til athugasemda.