Sótt er um leyfi til að sameina íbúðir 0001 og 0101 í eina íbúð og setja hringstiga á milli hæða í húsi á lóð nr. 23 við Laugateig. Erindi fylgir umsögn burðarþolshönnuðar ódagsett, samþykki meðeigenda á teikningu og umboð frá eigenda íbúðar 0301, dags. 15. mars 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.