Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á útliti sem felast í að gluggi á suðurhlið er fjarlægður og lokun sett í gluggagat, opnun hurðar að stigahúsi er snúið auk þess sem settir hafa verið tveir nýir gluggar á suðurhlið sem eru stærri en gert var ráð fyrir á samþykktum teikningum húss á lóð nr. 2 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir mæliblað 1.261.1 endurútgefið 4. júlí 2019, hæðablað dags. apríl 2001 ásamt A3 afriti af innsendum teikningum með yfirliti breytinga.
Gjald kr. 11.200