Fyrirspurn
Lagðar eru inn teikningar vegna breyttrar skráningartöflu fyrir þjónustumiðstöð og íbúðir, rými 0002 er breytt úr gestaherbergi í húsvarðaríbúð og brunahólfun í hreyfisal breytt í húsi nr. 27 við Sléttuhlíð á lóðinni nr. 25 við Sléttuveg.
Erindi fylgir brunahönnun Mannvits fyrir þjónustumiðstöð og íbúðir Sléttuvegi 27, útg. 3.0, dags. 21. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200