Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka íbúð 0101 þannig að útgröfnu rými sem er bætt við íbúðina verður geymsla, opnað á milli eldhúss og stofa ásamt breytingum á innra skipulagi íbúðar auk þess er sótt um fjölgun bílastæða úr tveimur í þrjú við tvíbýlishúsið á lóð nr. 53 við Logafold.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 19. maí 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar ásamt teikningu í A3 dags. 31. janúar 2020.
Stækkun vegna rýmis sem verið er að taka í notkun: XX ferm., XX rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020.
Gjald kr. 11.200