Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka íbúð 0101 þannig að útgröfnu rými er bætt við íbúðina og verður geymsla, opnað er á milli eldhúss og stofu ásamt breytingum á innra skipulagi íbúðar auk þess sem sótt er um fjölgun bílastæða úr tveimur í þrjú og koma fyrir palli og heitum potti við tvíbýlishúsið á lóð nr. 53 við Logafold.
Tölvupóstur dags. 2. júní 2020 þar sem meiðeigandi hafnar þessum breytingum .
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 19. maí 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar ásamt teikningu í A3 dags. 31. janúar 2020.
Stækkun vegna rýmis sem verið er að taka í notkun: 12,9 ferm., 34,2 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020.
Gjald kr. 11.200