Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á baklóð, stækka glugga og koma fyrir svölum á báðum hliðum, koma fyrir lyftu og innrétta 18 íbúðir á 2. - 4. hæð atvinnuhúss nr. 4, mhl. 01 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 21. febrúar 2017 og samþykki meðlóðarhafa dags. 12., 13. og 18. maí 2020. Stækkun: 74,9 ferm., 278,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa í grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta nr. 1.1-01, 1.1-02, 1.1-03 dags. 21. febrúar 2017, síðast breytt dags 16. júní 2020 og 25. júní 2020.