Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á baklóð, stækka glugga og koma fyrir svölum á báðum hliðum, koma fyrir lyftu og innrétta 18 íbúðir á 2. - 4. hæð atvinnuhúss nr. 4, mhl. 01 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 21. febrúar 2017 og samþykki meðlóðarhafa dags. 12., 13. og 18. maí 2020.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst ágúst 2020.
Stækkun: 74,9 ferm., 278,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200