Geymsla, sorpgerði og svalir.
Bankastræti 12 11.71.201
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1075
7. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir geymslu, sorpgerði og svölum á baklóð veitingastaðar í flokki III, tegund b) skemmtistaðar, fyrir 140 gesti, á lóð nr. 12 við Bankastræti.
Stækkun: Lokun A : 14,8 ferm., 31,3 rúmm., Lokun B : 18,6 ferm., Lokun C : 42,7 ferm.
Samskonar erindi, BN043787, var samþykkt 16. desember 2011 og fylgir afrit af þeim teikningum með erindinu. Einnig fylgir afrit af umsögn Minjastofnunar dags. 24. júní 2019, afrit af samþykkti tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags dags. 5. september 2018 og greinagerð hönnuðar dags. 25. júní 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007587