Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta áður gerðum 6 þakgluggum, auk þess að bæta við tveimur til viðbótar á rishæð húss á lóð nr. 4 við Leifsgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda vegna áður gerðra breytinga í risi, dags. 14. júní 2020, samþykki meðeigenda fyrir áður gerðum þakgluggum og fyrirhuguðum stækkunum á þeim, dags. 7. júní 2020 og fylgiskjöl, einnig greinagerð hönnuðar vegna áður gerðra og nýrra breytinga dags 9. og 12. júlí 2020.
Gjald kr. 11.200