Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN032930 vegna lokaúttektar, þannig að innra skipulagi er breytt, gerðar hafa verið geymslur í hluta af bílskúrum mhl. 03, 04 og 08 með aðgengi um nýja hurð úr anddyri, ásamt því að geymslur hafa verið fjarlægðar af 2. hæð og uppröðun tækja á baðherbergjum breytt í íbúðum raðhúsa nr. 15-27 á lóð 13-27 við Hólavað.
Gjald kr. 11.200