Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055624 þannig að B rými sem var port er nú orðið A rými, innréttingum breytt á öllum hæðum og brunahönnun uppfærð í húsinu á lóð nr. 7 við Lambhagaveg. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.