Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18. við Fálkagötu. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.