Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055994 og breyta staðsetningu á slússuglerrennihurðum beggja vegna sýningargangs í kjallara á milli verslunar-og skrifstofuhúss á lóð nr. 10 og verslunar- og íbúðarhúss á lóð nr. 16 við Aðalstræti. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Þinglýsa skal kvöð um opnun yfir lóðarmörk á milli Aðalstrætis 10 og 16 áður en byggingarleyfi er gefið út. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.