Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051881 þannig að flóttaleiðum og innra skipulagi skrifstofurýmis fyrir allt að 220 starfsmenn og 70 gesti er breytt á 2. hæð í norður- og vesturhluta verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á lóð nr. 1 við Bjargargötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af innlögðu teikningasetti og A3 afriti af teikningum samþykktum 7. febrúar 2017, teikningaskrá síðast breytt 5. nóvember 2020 ásamt bréfi frá hönnuði dags. 5. nóvember 2020.
Gjald kr. 11.200