Fyrirspurn
Lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 11. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir á annari hæð með glerbyggingu, opna stofurými út í sólskála og færa stiga sem var áður samþykktur á suðvesturhorni á norðvesturhorn svala á húsi nr. 30 á lóð nr. 22-30 við Víkurbakka. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júlí 2017.
Samþykki sumra dags. 29. mars 2017 fylgir erindi.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 11.000