Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Landspítalans dags. 28. mars 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Tunguháls. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til austurs og gera nýjan byggingarreit á sunnanverðri lóðinni fyrir hjólaskýli, samkvæmt uppdr. THG arkitekta ehf. dags. 25. mars 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. ágúst 2022 til og með 2. september 2022. Engar athugasemdir bárust.