Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja gestahús úr timbri á vesturhluta lóðar og verönd og tröppur við vesturgafl fjölbýlishúss á lóð nr. 58 við Miðtún. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst 2022.