Á fundi skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 29. janúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á vesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 7 við Suðurgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. febrúar 2013. Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett. Stækkun: 7 rúmm.Gjald kr. 9.000 + 630
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Suðurgötu 8, 8a og 10.