Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Andra Klausen dags. 5. september 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar - Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og nr. 39-93 við Grandagarð. Í breytingunni felst að skipta svæðinu upp í fimm lóðir, niðurrifi eldri bygginga og byggingu nýrra og hærri húsa eða 2-4 hæðar ásamt byggingu bílastæðahúss fyrir um 300 bíla, samkvæmt uppdráttum ASK Arkitekta ehf. dags. 18. ágúst 2019. Einnig er lögð fram húsakönnun fyrir Örfirisey og Granda dags. 2009, minnisblað teiknistofunnar Stiku dags. 28. maí 2019, minnisblað Eflu dags. 20. júní 2019, tvær skýringamyndir teiknistofunnar Stiku ódags., og kynningarhefti ASK Arkitekta ehf. dags. 5. september 2019. Jafnframt er lögð fram drög að viljayfirlýsingu dags. í júní 2019, umsögn Faxaflóahafna sf. dags. 17. september 2019, bréf Faxaflóahafna sf. dags. 20. september 2019 og minnisblað Faxaflóahafna sf. dags. 25. maí 2020.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211