Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2022 þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir færanlegri snjall-sjálfsafgreiðslustöð með kælingu fyrir matvörur, byggða úr clt einingum á lóð nr. 1 við Ingunnargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.