Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. maí 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja sólskála sem verður 3,150 X 6,8 metrar ofan á suð-vestur svalir hússins á lóð nr. 25 við Stuðlasel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2013..
Teikningar af sólskála fylgir.