Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits. Í breytingunni felst að skilgreina nýja lóð og byggingarreit fyrir grenndarstöð á horni Hrannarstígs og Öldugötu, breyting á fyrirkomulagi bílastæða í borgarlandi við Hrannarstíg og ráðstafanir við gatnamót til að auka umferðaröryggi, skv. uppdrætti VA arkitekta, dags. 20. apríl 2022. Einnig er lagður fram tölvupóstur Fjalars Kristjánssonar dags. 30. maí 2022 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti.