Lögð fram drög að lýsingu umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, og
Kanon Arkitekta ehf.
vegna deiliskipulags Veðurstofuhæðar, BH3, dags. í desember 2017. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Kringlumýrarbraut til austurs, Bústaðavegi til suðurs, núverandi íbúðabyggð við Stigahlíð til norðurs. Til vesturs er opið svæði í Litlu Öskjuhlíð, lóð Veitna fyrir vatnsgeymi og lóðin Bústaðavegur 7, þar sem Landsvirkjun var áður.