Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 5. september 2019 að breytingu á skilmálum deiliskipulags "Hlemmur + 1.241.0, 1.241.1 Hampiðjureitir". Í breytingunni felst að skilgreina nánar heimild í deiliskipulagi vegna minniháttar breytinga varðandi kvisti og svalir.