Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks þar sem óskað er eftir því að fá gögn frá Borgarsögusafni þar sem heimilt er að staðsetja byggingar innan 15 metra helgunarsvæðis Stakkstæðis. Stakkstæðið hefur verið afmarkað af Borgarsögusafni og 15 metra helgunarsvæði umhverfis það eins og lög um menningarminjar nr. 80/2012 gera ráð fyrir.