Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2015 var lögð fram fyrirspurn Ólafs Ó. Axelssonar arkitekts, dags. 21. ágúst 2015, um að byggja tveggja hæða viðbyggingu við húsið á lóð nr. 48 við Ægisíðu, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. september 2015.