Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. september 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. september 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili í flokki ? teg. ? í einbýlishúsi á lóð nr. 87 við Háaleitisbraut. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.