Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. september 2016 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja 71 íbúð í þremur fjölbýlishúsum á sameiginlegum bílakjallara með 44 stæðum á reit C við Jaðarleiti. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.14. október 2016.