Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. nóvember 2018 þar sem umsagnarbeiðni frá nefndarsviði Alþingis frá 8. nóvember 2018 um tillögu til þingsáætlunar um aðgerðaráætlun í húsnæðismálum er send umhverfis- og skipulagssviði, borgarstjóra og borgarritara til umsagnar. Óskað er eftir að umsögn berist eigi síðar en 29. nóvember 2018.