Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir fyrirhuguðum viðgerðum og breytingum, þ.e. anddyri á suðurhlið er hækkað og komið fyrir stiga, kvistur settur á norðurhlið með aðgengi út á þak til norðurs, múrhúðin verði fjarlægð af veggjum og gaflar klæddir listasúð á húsi á lóð nr. 17 við Bjargarstíg. Stækkun : xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga hönnuðar dags. 1. desember 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 22. desember 2021. Gjald kr.12.100