Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að gera nýja innkeyrslu við eystri lóðamörk, byggja tvöfaldan bílskúr með tröppum í bakgarð, gera þaksvalir á bílskúr og koma þar fyrir setlaug við tvíbýlishús á lóð nr. 65 við Laufásveg. Stærð: 58 ferm., 203 rúmm. Gjald kr. 9.823