Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. ágúst 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Grillhússins um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Grillhúsið að Sprengisandi, Bústaðarvegur 153. Sótt er um veitingaleyfi áfengis til kl. 23:00 öll kvöld og einnig um útiveitingaleyfi til kl: 20:00 öll kvöld. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2014.