Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Kanon arkitekta ehf.
f.h. Barnaverndarstofu dags. 17. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossaleynismýri. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri lóð norðan við lóð Fossaleynis 17 fyrir færanlegt bráðabirgðahúsnæði fyrir starfssemi meðferðarheimilisins Stuðla, samkvæmt uppdr.
Kanon arkitekta ehf.
dags. 17. janúar 2019. Einnig er lagt fram umboð Barnaverndarstofu dags. 19. desember 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 1. febrúar 2019 til og með 1. mars 2019. Engar athugasemdir bárust.