Lagt fram bréf Samgöngustofu dags. 11. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis
Nordic car rental ehf.
til reksturs ökutækjaleigu með gildistíma frá 7. júní 2018. Verið er að flytja starfsemi ökutækjaleigunnar frá Funahöfða 6 að Skúlagötu 13. Sótt er um leyfi fyrir 15 ökutækjum í útleigu frá aðalútibúi. Einnig er óskað eftir útibúi ökutækjaleigunnar að Hverfisgötu 105 þar sem óskað er eftir 3 ökutækjum til útleigu frá þeim stað.