(fsp) merking húsnæðis
Skúlagata 13
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 856
11. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. janúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Samgöngustofu dags. 26. janúar 2022 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur f.h. Hopp Deilibíla ehf. um að reka ökutækjaleigu að Skúlagötu 13. Sótt er um leyfi fyrir 10 ökutækjum í útleigu sem leigðar verða af Höldur/Bílaleigu Akureyrar. Ökutæki eru staðsett innan þjónustusvæðis hopp og má leggja þeim hvar sem er í bílastæði á borgarsvæðinu, ekki verða sérmerkt stæði fyrir ökutæki. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2022 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 175690 → skrá.is
Hnitnúmer: 10054930