Á fundi skipulagsfulltrúa 4. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. desember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja ofan á núverandi framhús ásamt því að reisa nýbyggingu á baklóð fyrir gistiheimili í flokki II, gestafjöldi 32 og fjórir starfsmenn, sbr. fyrirspurn BN050029 sem svarað var neitandi 20.10. 2015 fyrir hús á lóð nr. 56 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju. Stærðir: Meðfylgjandi er bréf lögfræðings dags. 26.11. 2015. Gjald kr. 9.823
Svar
Leiðrétt bókun frá embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa hinn 4. desember 2015: Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.