Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. desember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja ofan á núverandi framhús ásamt því að reisa nýbyggingu á baklóð fyrir gistiheimili í flokki II, gestafjöldi 32 og fjórir starfsmenn, sbr. fyrirspurn BN050029 sem svarað var neitandi 20.10. 2015 fyrir hús á lóð nr. 56 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. janúar 2016..
Stærðir:
Meðfylgjandi er bréf lögfræðings dags. 26.11. 2015. Gjald kr. 9.823