Fyrirspurn
Lagt fram erindi skipulagsstjóra Kópavogs dags. 3. júlí 2018 þar sem vakin er athygli á kynningu á breyttu deiliskipulagi skíðasvæðisins í Bláfjöllum, samkvæmt tillögu Landslags dags. 13. apríl 2018. Einnig er lögð fram greinargerð, umhverfisskýrsla og skilmálar Landslags dags. 13. apríl 2018 og greinargerð starfshóps Kópavogsbæjar dags. í febrúar 2018. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra aðalskipulags Reykjavíkur dags. 20. ágúst 2018.