Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Aðalheiðar Atladóttur f.h. Samtaka aldraðra dags. 9. júlí 2018 um breytingu á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands, reitur 1.254. Í breytingunni felst stækkun svala, hækkun á kóta bílakjallara og breytingar á þakhalla, samkvæmt uppdráttum A2F arkitekta dags. 29. júní 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 30. júlí 2018 til og með 27. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.