Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir nýjum svölum út frá eldhúsi 1. hæðar og tröppum frá þeim niður í garð á lóð nr. 16 við Tjarnargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 30. apríl 2018 til og með 28. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda dags. 26. febrúar 2018, bréf hönnuðar um beiðni um undanþágu frá BR 112/2012 dags. 7. mars 2018 fylgja erindinu.
Einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27. febrúar 2018 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. apríl 2018. Gjald kr. 11.000