Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. október 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. október 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á, breyta rishæð og fjölga íbúðum um eina ásamt því að breyta útistiga í húsi á lóð nr. 10 við Spítalastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2018.
Samþykki meðlóðarhafa í mhl. 02 áritað á teikningu fylgir erindi.
Einnig fylgja umsagnir Minjastofnunar dags. 30.10.2017, 13.06.2018 og 10.09.2018 og lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09.03.2018 við fsp. SN180103. Gjald kr. 11.000